07.09.2016Sala á hrámjólk
Frá og með 7. september 2016, verður sú breyting á sölu á hrámjólk, að MS hættir sölu á þessari vöru til annarra framleiðenda,
en Auðhumla svf. mun þess í stað annast alla sölu á hrámjólk til MS og annarra kaupenda sem hafa afurðastöðvaleyfi.
Þar sem afhending hrámjólkur helst í hendur við söfnum mjólkur er nauðsynlegt að pantanir berist fyrir hádegi, daginn áður en afhendingar er óskað.
Þeir sem hafa fasta samninga þurfa þó ekki að hafa þennan háttinn á.
Tekið er á móti pöntunum á netfanginu mjolk@audhumla.is.
Nánari upplýsingar veitir Garðar Eiríksson, gardare@audhumla.is