31.08.2018Hækkun á sérstöku innvigtunargjaldi frá 1. september 2018
Stjórn Auðhumlu svf. ákvað á fundi sínum 30. ágúst 2018 að hækka sérstakt innvigtunargjald úr Kr. 52.- á lítra á mjólk umfram greiðslumark í Kr. 57.- sem gildir frá 1. september 2018
Er þetta gert með hliðsjón af því verðmæti sem fæst fyrir þetta hráefni í útflutningi.
Raunlækkun á verði fyrir lítra umframmjólkur er aðeins Kr. 2.- því frá 1. september hækkar verð á mjólkurlítra til bónda úr Kr. 87.40 í Kr. 90.48 eða Kr. 3.08