27.06.2020Verð fyrir mjólk umfram greiðslumark frá 1. ágúst 2020
Stjórn Auðhumlu ákvað á fundi sínum 26. júní 2020 að afurðastöðvarverð fyrir mjólk umfram greiðslumark verði frá 1. ágúst 2020 kr. 20.- Auk þess verði greitt eftir gæðum og verðefnum eins og áður.
Uppbætur verða greiddar eftir að lokauppgjör ársins hefur farið fram, ef tilefni gefur til.
Aðstæður á erlendum mörkuðum er afar þungar um þessar mundir og verð lág. Langan tíma tekur að afsetja vörur á erlendan markað auk þess sem COVID-19 hefur mikil áhrif.
Í ljósi þessa er þessi ákvörðun tekin um verð fyrir mjólk umfram greiðslumark frá 1. ágúst nk.