17.01.2008Kotasæla hefur fengið nýtt útlit!
Reykjavík, janúar 2008
Komnar eru á markað nýjar umbúðir af kotasælu, breytingin felst eingöngu í umbúðum en ekki innihaldi.
Kotasæla hrein eða bragðbætt er góð ein sér eða sem álegg og með grænmeti eða ávöxtum, passar vel í salöt og salatsósur, í bökudeig, hverskyns brauðbakstur og eftirrétti.
Markaðssetningu verður fylgt úr garði með auglýsingum í dagblöðum og útvarpi.
Kotasæla er framleidd hjá MS Akureyri
Sé frekari upplýsinga óskað þá vinsamlegast hafið samband við sölumenn Mjólkursamsölunnar ehf. í s:569 2345.
Mjólkursamsalan ehf.
Sölu- og markaðssvið