18.02.2008Dala Feta - nýjar og notendavænni umbúðir - 20% meira magn en sama verð !
Dala Feta línan kemur nú á markaðinn í nýjum, glæsilegum umbúðum.
Um er að ræða fjórar tegundir af Dala Feta, sem áður voru í glerkrukkum annars vegar og plastdósum hins vegar. Umbúðirnar eru notendavænni með víðara opi svo að auðveldara er að ná ostinum úr glösunum. Nýju umbúðirnar eru stærri eða 325 gr og því hefur magnið verið aukið um 20%. Rúsínan í pylsuendanum er þó að verðið mun haldast óbreytt frá því sem verið hefur.
Í hverju glasi eru 170 gr af osti og 155 gr af kryddaðri olíu.
Dala Feta er tilvalinn í salöt, sem snarl með ólífum, í ídýfur og í ýmsa gríska rétti og matargerð. Einnig er hann góður í ofnbakaða rétti og á pizzur svo fátt eitt sé talið upp.
Í tilefni nýrra umbúða verður lukkunúmeraleikur, en lukkunúmer er prentað á bakhlið miðans og kemur númerið í ljós þegar innihald krukkunnar minnkar. Á www.ostur.is er síðan hægt að slá númerið inn í þar til gerðan reit og viðkomandi sér strax hvort hann hefur unnið eða ekki. Fetaostur með lukkunúmerum verður sérmerktur með límmiðum á loki.
Dala Feta er framleiddur hjá MS Búðardal.