27.05.2008Reglur um stuðning við deildir Auðhumlu
Það er stefna Auðhumlu að styrkja starfsemi félagsdeildanna sem er grunnurinn að starfsemi félagsins. Öflugt grasrótarstarf heima í deildum styrkir Auðhumlu í þeim anda samþykkti stjórn Auðhumlu eftirfarandi reglur um fjárhagslegan stuðning við félagsdeildir Auðhumlu á stjórnarfundi félagsins þann 21. maí síðastliðinn:
Reglur um stuðning við félagsdeildir Auðhumlu
Félagsdeildir Auðhumlu eiga rétt á fjárhagslegum stuðningi til að efla félagslegt starf deildanna. Markmiðið með stuðningi þessum er að efla deildirnar og það grasrótarstarf sem þar er unnið á vegum Auðhumlu. Eftirfarandi reglur gilda um stuðning þennan.
- Félagsdeildir Auðhumlu geta sótt um fjárhagslegan stuðning við starfsemi sína einu sinni á hverju almanaksári.
- Stuðningurinn er 5.000 kr fyrir hvert innleggsnúmer í viðkomandi deild eins og það er á þeim tíma sem styrkurinn er veittur.
- Styrkveiting þessi er skilyrt því að styrkurinn verði notaður til að efla félagslegt starf í deildum Auðhumlu. Nánari útfærsla og nýting á styrknum er í höndum deildarstjóra hverrar deildar.
- Þá er sett það skilyrði að hver og ein deild sem fær fjárhagslegan stuðning sendi Auðhumlu stutta skýrslu um það hvernig fjármurnir voru nýttir.
- Það er skilyrði fyrir því að geta fengið stuðning að nýju að slík skýrsla liggi fyrir og að ekki sé verið að safna þessum peningum í sjóð hjá vikomandi heldur að þeir séu nýttir til félagsstarfsins á hverju ári.
- Umsjón með styrkveitingum er í höndum Gunnars Jónssonar, sími 569 2205 og netfang gunnarj@ms.is skrifstofustjóra Auðhumlu svf.
F.h. stjórnar Auðhumlu svf
Guðbrandur Sigurðsson