19.03.2009Aðalfundur SAM 13. mars 2009
Aðalfundur samtaka afurðastöðva í mjólkuriðnaði (SAM) var haldinn föstudaginn 13. mars sl. Nokkrar breytingar urðu á stjórn samtakanna. Stjórnina skipa eftir aðalfund: Frá Landssambandi kúabænda: Sigurður Loftsson, aðalmaður og Jóhann Nikuklásson, varamaður. Frá Auðhumlu: Magnús Ólafsson sem jafnframt er formaður, Egill Sigurðsson, Erlingur Teitsson, Jón Axel Pétursson og Pálmi Vilhjálmsson. Varamenn Sigurður Rúnar Friðjónsson, Birna Þorsteinsdóttir, Stefán Magnússon, Guðmundur Geir Gunnarsson og Björn Harðarsson. Frá Kaupfélagi Skagfirðinga: Rögnvaldur Ólafsson og Snorri Evertsson, varamaður.