08.04.2009Stuðningur sunnlenskra kúabænda við Mæðrastyrksnefnd
Þórir Jónsson, formaður félags kúabænda á Suðurlandi heimsótti Mæðrastyrksnefnd þann 31.mars s.l. ásamt Elínu í Egilsstaðarkoti, sem situr í stjórn félagsins. Þetta var fyrsti afhendingardagur á mjólkurvörum frá Sunnlenskum kúabændum frá því að söfnunin hófst og verður mánaðarlega til áramóta. Var ákveðið að heimsækja Mæðrastyrksnefnd af þessu tilefni og fara yfir það með hvaða hætti þetta verkefni gengi fyrir sig þennan tíma sem því er ætlað að vara. Móttökur forstöðukvenna Mæðrastyrksnefndar voru hlýlegar og lýstu þær þakklæti sínu fyrir hönd félagsins.
Á vegum Mæðrastyrksnefndar er unnið mikið starf og óeigingjarnt. Það er aðdáunarvert hvernig það gengur fyrir sig, eingöngu í sjálfboðavinnu.