11.03.2010Verð á umframmjólk frá 1. mars 2010
Stjórn Auðhumlu svf. hefur ákveðið að verð á umframmjólk greiðslumarks-tímabilið 2009 -2010 verði sem hér segir og gildi frá 1. mars 2010:
Greitt verði fyrir umframmjólk (mjólk umfram greiðslumark), sem er ígildi 1,5% af 16 mánaða greiðslumarki hvers og eins kr. 35,- á lítra. Allir greiðslumarkshafar hafa hlutfallslega sama rétt til að framleiða þessa mjólk.
Greitt verði fyrir umframmjólk umfram þessi 1,5%, ígildi markaðstekna á alþjóðamarkaði að frádregnum vinnslukostnaði. Upphæð fyrir þennan hluta umframmjólkur verður 25,- kr. á lítra. Verðið verður endurskoðað ársfjórðungslega, fyrst 31. mars 2010 með hliðsjón af markaðstekjum að frádregnum vinnslukostnaði.
Nýtt viðmiðunarverð verður gefið út 1. júlí og síðan ársfjórðungslega eftir það.